Hagnýt ráð

Meðhöndlun og ísetning

Hvernig er best að meðhöndla slörið?

Slörið kemur samanpakkað og getur verið svolítið krumpað þegar það kemur.  Best er að láta slörið einfaldlega hanga í smá tíma þá jafnar það sig.

Ekki er gott að strauja slörið þar sem það er úr þannig efni að það getur bráðnað, ef þú hefur aðgang að gufutæki er gott að gufa það frekar.

 

Ísetning

Hvernig er best að festa brúðarslörið?

Slörið kemur með kambi og þarf að festa hann rétt í svo að slörið snúi rétt og fari vel.

Staðsetning slörsins í hnakkanum fer eftir hárgreiðslu og vilja hvers og eins.

 

Haltu kambinum þannig að hann myndi „U“ og tindarnir snúi fram. Slörið á að vera aftur með hnakkanum og ef það er tvöfalt á styttri hlutinn að snúa upp.

Brúðarslör, Hagnýt ráð
Brúðarslör, Hagnýt ráð

Nú er kambinum snúið niður og honum stungið í hárið.

Gott er að hafa hnút í hárinu eða setja spennur í hárið ásamt hárspreyi til að hafa festu fyrir kambinn.

Kamburinn ætti nú að vera vel fastur í hárinu

Brúðarslör, Hagnýt ráð
Brúðarslör, Hagnýt ráð

Gott er að festa kambinn betur með spennum þegar búið er að setja slörið í.

Brúðarslör.is er í eigu.

Fjallaspuna ehf
KT: 590123-0210

Fjallafrúin -saumar-

Elín Jóna Traustadóttir
Tungufell 1a, 846 Flúðir
brudarslor@brudarslor
+354 893 6423

Fjallafrúin
-saumar-

Vefverslun www.fjallafruin.is

Handverkstorg.is