Lýsing
Slörin eru öll sérsaumuð og því ekki til á lager, það tekur um 6-8 vikur að afgreiða slör.
Þau eru saumuð úr úrvals efni og er á því svolítill glans sem gerir þau mjög falleg og ólík innfluttum slörum.
Boðið er uppá þrjá liti en þeir eru:
Hvítur: fer einkar vel með hvítum kjólum.
Demantshvítur: hentar bæði með hvítum og ljóskremuðum kjólum.
Kremaður (ivory): hentar með kremuðum kjólum og koníakslitum kjólum.
Stutt slör eru í síddinni 65 cm (25″) til 90 cm (36″).
Síð slör eru frá því að vera 135 cm eða 54″ síð upp í 275 cm eða 108″ síð.
Styttri slörin eru 185 cm eða 72″ breið, en síðari slörin eru 275 cm eða 108″ breið.
Nánar um sídd slöra:
Shoulder Length Veil : 65 cm eða 25″
Elbow Veil : 75 cm eða 30″
Petite Fingertip Veil : 90 cm eða 36″
Waltz Veil : 135 cm eða 54″
Flor Length Veil : 175 cm eða 70″
Chapel Veil : 225 cm eða 88″
Cathedral Veil : 275 cm eða 108″